Kvika leiðir kaup á Kortaþjónustunni

Eignarhluti Kviku verður rúmlega 40% eftir viðskiptin.
Eignarhluti Kviku verður rúmlega 40% eftir viðskiptin. mbl.is/Golli

Kvika ásamt hópi fjárfesta hefur keypt allt hlutafé í Kortaþjónustunni hf. (Korta) og leitt hlutafjáraukningu í félaginu. Eignarhluti Kviku verður rúmlega 40% eftir viðskiptin en aðrir hluthafar munu eiga undir 10% hlut hver í Korta.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Korta sér um greiðslumiðlun fyrir um 2.400 fyrirtæki innanlands og utan. Félagið, sem stofnað var árið 2002, hefur vaxið hratt undanfarin ár og eru starfsmenn þess um 60 talsins. Korta fékk leyfi sem greiðslustofnun frá Fjármálaeftirlitinu árið 2012 og varð í kjölfarið fullgildur aðili að VISA Europe og MasterCard International,“ segir í tilkynningunni.

„Við fögnum aðkomu fjársterkra hluthafa að Korta sem mun efla rekstur félagsins. Undanfarin ár hefur vöxtur félagsins verið ör og aðkoma hinna nýju eigenda mun leggja góðan grunn að áframhaldandi traustum rekstri,“ segir Jóhannes I. Kolbeinsson, forstjóri Korta, í tilkynningunni. 

„Stjórnendur Korta hafa byggt upp mjög öflugt félag á spennandi markaði, sem hefur að okkar mati mikla framtíðarmöguleika. Við hlökkum til að starfa með þeim að frekari vexti félagsins,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK