Birkir Hólm lætur af störfum hjá Icelandair

Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að gera breytingar á skipulagi samstæðunnar og fela þær meðal annars í sér að Birkir Hólm Guðnason láti af störfum sem framkvæmdastjóri flugfélagsins.

Breytingarnar snúast um að rekstur og starfsemi Icelandair Group og Icelandair verði samþætt með þeim hætti að einn forstjóri verði yfir báðum félögum auk þess sem fjármálasvið félaganna verði sameinuð.

Forstjóri verður Björgólfur Jóhannsson og framkvæmdastjóri fjármála verður Bogi Nils Bogason. Þá verða IGS, sem sinnir flugþjónustu á Keflavíkurflugvelli, og Icelandair Cargo, hluti af Icelandair, en þessi félög hafa verið dótturfélög Icelandair Group. 

Birkir Hólm var ráðinn framkvæmdastjóri í maí 2008 og hafði þá starfað hjá Icelandair um árabil. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK