Fulltrúar Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa fundað frá því kl. 13 í dag hjá ríkissáttasemjara í því skyni komast að samkomulagi um kjarasamninga.
Félagar í Flugvirkjafélagi Íslands sem starfa hjá Icelandair ehf. boðuðu í gær til verkfalls ótímabundið frá klukkan 06:00 að morgni 17. desember. Alls starfa 280 flugvirkjar hjá Icelandair og í heildina eru rúmlega 500 flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands.
Samningar flugvirkja við Icelandair losnuðu 31. ágúst og var kjaraviðræðunum vísað til ríkissáttasemjara 8. september. Síðan þá hefur verið fundað margsinnis, án árangurs. Níundi sáttafundur flugvirkja og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Icelandair, fór fram á mánudaginn.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagðist í gær vera bjartsýnn á að ekki komi til röskunar á flugi. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, vildi ekki tjá sig um málið í samtali við mbl.is.
Ekki hefur verið ákveðið hvort þráðurinn verði tekinn upp á morgun eða mánudag, náist ekki samningar í dag.