Ágúst formaður Félags löggiltra endurskoðenda

H. Ágúst Jóhannesson er nýr formaður Félags löggiltra endurskoðenda,
H. Ágúst Jóhannesson er nýr formaður Félags löggiltra endurskoðenda,

H. Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi hjá KPMG, var kosinn nýr formaður Félags löggiltra endurskoðenda, á aðalfundi félagsins 10. nóvember. Hann tekur við af Margréti Pétursdóttur fráfarandi formanni.

Ágúst, eins og hann er kallaður, fæddist 21. febrúar 1960 í Reykjavík, hann fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1999. Hann hefur  starfað hjá BDO Endurskoðun ehf, Ernst & Young og sem löggiltur endurskoðandi hjá KPMG frá 1999 og meðeigandi frá 2001. Ágúst hefur gegnt embætti varaformanns hjá félaginu síðastliðin tvö starfsár, að því er segir í tilkynningu.

Á ársþingi NRF,  Norræna endurskoðendasambandinu sem haldið var í Þrándheimi í ágúst síðastliðinn tók Ísland við formennsku sambandsins.  Ágúst er því líka formaður NRF næstu tvö árin.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir endurskoðandi hjá PwC er nýr varaformaður félagsins.  Aðrir í stjórn félagsins eru Guðni Þór Gunnarsson, Sif Einarsdóttir og Anna Kristín Traustadóttir, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK