Svali Björgvinsson hættir hjá Icelandair

Svali H. Björgvinsson hefur hætt sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Icelandair en því greindi hann frá í tölvupósti til samstarfsfélaga sinna í gær. 

Þetta staðfestir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is en Vísir greindi fyrst frá. 

Svali hóf störf sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Icelandair í mars 2009. Hann var framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Kaupþings banka frá árinu 2005 til 2008 og þar áður forstöðumaður starfsþróunarsviðs IBM Consulting Services og einn af eigendum PWC.

Svali hefur kennt við Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og Menntaskólann á Laugarvatni.
Hann er með BA gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands og MA gráðu í starfsmannastjórnun og vinnusálfræði frá New York University.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK