Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2018 nam fob-verðmæti vöruútflutnings 48,5 milljörðum króna og fob-verðmæti vöruinnflutnings 53,9 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um 5,4 milljarða króna, segir í frétt Hagstofu Íslands.