Samkaup kaupa valdar verslanir Basko

Basko rekur verslanir undir vörumerki 10-11, Iceland, Háskólabúðin og Inspired …
Basko rekur verslanir undir vörumerki 10-11, Iceland, Háskólabúðin og Inspired By Iceland. Af vef 10-11

Samkaup og Basko hafa komist að samkomulagi um að Samkaup kaupi valdar verslanir í eigu Basko. Samkomulagið er enn háð fyrirvörum, m.a. um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. 

Fram kemur, að Samkaup reki um fimmtíu verslanir á 33 stöðum um allt land. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu vörumerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin og Krambúð. Starfsmenn félagsins eru um 1.000 í rúmlega 500 stöðugildum.

Þá segir, að Basko reki verslanir undir vörumerki 10-11, Iceland, Háskólabúðin og Inspired By Iceland.

Samningsaðilar munu ekki tjá sig frekar um viðskiptin þar til fyrirvörum hefur verið aflétt. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi Samkaupa, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK