Fjáreignir heimilanna jukust um 8,9%

Fjáreignir heimilanna stóðu í 5.666 milljörðum króna og fjárskuldir í 1.930 milljörðum króna í lok árs 2016. Heildarfjáreignir jukust um tæplega 8,9% á meðan skuldir hækkuðu um rúmlega 2,3% milli áranna 2015 og 2016.

Þetta kemur fram í Fjármálareikningum Hagstofu Íslands. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að heildarskuldbindingar innlendra efnahagsgeira hafi numið 27.844 milljörðum króna eða 1.135% af vergri landsframleiðslu í árslok 2016. Heildarfjáreignir hafi numið 27.137 milljörðum eða 1.106% af VLF samkvæmt nýuppfærðum tölum Hagstofunnar. Fjáreign innlendra aðila hafi því verið neikvæð um 707 milljarða í lok árs 2016, en var neikvæð um 839 milljarða króna árið áður.

Þá námu heildarfjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja um 4.562 milljörðum króna samkvæmt uppfærðum tölum og lækkuðu um 12,2% frá árinu 2015, en fjárskuldir stóðu í 8.435 milljörðum króna og lækkuðu um 5,5% á milli ára.

Fjáreignir fjármálafyrirtækja námu um 15.532 milljörðum króna í lok árs 2016 og drógust saman um 8,8% á milli ára, en fjárskuldbindingar voru 15.213 milljarðar kr. og höfðu lækkað um 6,9% á milli ára.

Samkvæmt frétt Hagstofunnar námu fjáreignir hins opinbera 1.319 milljörðum króna í lok árs 2016 eða sem nemur 54% af VLF og skuldir 2.258 milljörðum króna eða 92% af VLF.

Fjármálaeignir erlendra aðila stóðu í 4.539 milljörðum kr. (185% af VFL) í árslok 2016 og skuldbindingar í 3.823 milljörðum kr. (156% af VFL). Fjáreignir lækkuðu um 22% og skuldbindingar um tæp 23% milli áranna 2015 og 2016.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK