Spá 4% hækkun bensínverðs

AFP

Verð á bensínlítra mun hækka um 4% í maí gangi spá greiningardeildar Arion banka eftir. Á móti er búist við því að flugfargjöld lækki álíka mikið. 

Greiningardeild bankans spáir 0,3% hækkun á vísitölu neysluverðs í maí. Tólf mánaða taktur verðbólgunnar mun þannig hækka í 2,4% úr 2,3% frá því í síðasta mánuði. 

Eins og áður segir er spáð 4% hækkun á verði bensínlítrans og 3,44% hækkun á verði dísellítrans. Vægi eldsneytis í vísitölu neysluverðs hefur aukist í 3,15% úr 1,86% og áhrifin eru því meiri nú en þau hefðu orðið fyrir nokkrum mánuðum.

Þá bendir mæling greiningardeildarinnar á flugfargjöldum til lækkunar upp á rúmlega 4%. Búist er við að árstaktur verðbólgu sveiflist í kringum verðbólgumarkmið fram á sumar en fari síðan í um 3% í haust. 

Sjá nánar um greininguna í Markaðspunktum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK