Hanna Eiríksdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Omnom Chocolate og hefur störf seinni hluta sumars.
Undanfarin ár hefur hún starfað fyrir landsnefnd UN Women á Íslandi, meðal annars sem herferðar- og framkvæmdastýra. Einnig starfaði hún sem blaðamaður um fimm ára skeið. Hanna er blaðamaður að mennt frá Háskólanum í Florida og með meistaragráðu frá háskólanum í Sussex í mannréttindum.
Omnom er súkkulaðiframleiðandi sem býr til súkkulaði frá grunni ásamt því að reka eigin verslun. Fyrirtækið selur súkkulaðið í verslanir á Íslandi og flytur það einnig út.