Kaupmáttur launa í maí 2018 er 149,1 stig og hækkaði um 2,4% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,2%.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands. Launavísitala í maí 2018 er 656,5 stig og hækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,3%.
Í frétt Hagstofunnar segir að í vísitölunni gæti áhrifa kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Meðal annars sé kveðið á um 3,0% almenna launahækkun þann 1. maí 2018 í samningi aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnulífsins (SA) og í kjarasamningi SA og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja sé kveðið á um 5,0% almenna launahækkun á sama tíma.