Íþróttaiðnaðurinn hlutfallslega stærstur á Íslandi

Á leik Íslands gegn Nígeríu.
Á leik Íslands gegn Nígeríu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hvergi í Evrópu starfar jafnhátt hlutfall vinnandi fólks í íþróttaiðnaðinum og á Ísland. Alls starfa 2% vinnandi fólks á Íslandi í íþróttaiðnaði, eða 1,9% starfandi kvenna og 2,2% starfandi karla.

Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands sem byggir á evrópsku vinnumarkaðsrannsókninni á vef Eurostat. Af þeim 10 löndum þar sem íþróttageirinn er hlutfallslega stærstur eiga fimm lönd sæti á heimsmeistarakeppninni í fótbolta ásamt Íslandi, en þau eru Svíþjóð, Bretland, Spánn, Danmörk og Portúgal. Króatía er með fimmta lægsta hlutfallið af Evrópulöndunum. 

Í frétt Hagstofunnar segir að störfum í íþróttageiranum í Evrópu hafi fjölgað frá árinu 2011, mest í Slóvakíu, Ungverjalandi, Portúgal og Eistlandi þar sem árlegur vöxtur fór yfir 10%. Þá hafi störfum í íþróttaiðnaði fjölgað meira en störfum á vinnumarkaði í heild víðast hvar í Evrópusambandinu, en hlutfallið jókst að meðaltali úr 0,7% árið 2011 í 0,8% árið 2016.

„Á Íslandi hefur störfum í íþróttaiðnaði ekki fjölgað meir en á vinnumarkaði almennt og hlutfallið því haldist stöðugt við 2%,“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK