Björn nýr sparisjóðsstjóri Strandamanna

Björn Líndal Traustason nýr sparisjóðsstjóri og starfsfólk sparisjóðsins, Elsa Sigurðardóttir …
Björn Líndal Traustason nýr sparisjóðsstjóri og starfsfólk sparisjóðsins, Elsa Sigurðardóttir gjaldkeri, Ingibjörg B. Sigurðardóttir, þjónusta og tryggingar, og Svanhildur Jónsdóttir afgreiðslustjóri. Ljósmynd/Aðsend

Björn Líndal Traustason hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Strandamanna af stjórn sparisjóðsins segir í fréttatilkynningu. Björn er fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og hefur áður starfað hjá Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Landsbankanum.

Heildareignir Sparisjóðsins samkvæmt ársreikningi eru tæplega  3.750 milljónir króna, eigið fé um 350 milljónir króna og eru stofnfjáreigendur 103. Sparisjóður Strandamanna er nú með afgreiðslur á Hólmavík og á Norðurfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK