Fyrstur til að skora á nýju keppnistímabili

Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson varð fyrstur til að skora í ensku knattspyrnunni á keppnistímabilinu 2018-2019. Reading, lið Jóns Daða, tók á móti Derby County í fyrsta leik ensku B-deildarinnar í gær. Var þar um fyrsta leik tímabilsins að ræða en aðrar deildir eru ekki farnar af stað.

Jón Daði skoraði laglegt mark með föstum skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri á 52. mínútu en Jón var í byrjunarliði Reading. Derby var hins vegar ekki lengi að jafna og það gerði Mason Mount á 60. mínútu.

Ekki var útlit fyrir að fleiri mörk yrðu skoruð en Derby tókst þó að tryggja sér góðan 2:1 útisigur, leikið var á heimavelli Reading. Tom Lawrence skoraði sigurmarkið þegar fjórar mínútur voru liðnar af uppbótartíma en þá var Jón Daði farinn af velli en honum var skipt út af eftir 75 mínútur.

Frank Lampard, fyrrverandi samherji Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea, stýrði Derby í fyrsta sinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK