2,5% atvinnuleysi

mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls mældist atvinnuleysi 2,5% í ágúst, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Skráð atvinnuleysi í ágúst var 2,3% samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun.

Áætlað er að 208.600 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í ágúst 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 82,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 203.400 starfandi og 5.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,5%.

Samanburður mælinga fyrir ágúst 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 7.900 manns en þrátt fyrir það lækkaði hlutfall þess af mannfjölda um 0,4 prósentustig. Sömu sögu má segja um fjölda starfandi. Þar fjölgaði um 7.600 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausir í ágúst 2018 mældust 400 fleiri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 4.800 eða 2,4% af vinnuafli. Alls voru 44.500 utan vinnumarkaðar í ágúst 2018 sem er aukning um 2.900 frá því í ágúst 2017 þegar þeir voru 41.600.

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 206.100 í ágúst 2018. Atvinnuþátttaka var því 81,8% í ágúst, sem er sama hlutfall og var í júlí. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.500 eða 2,7%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í ágúst 2018 var 79,6%, sem er 0,7 prósentustigum hærra en það var í júlí. Eins og myndirnar hér að neðan sýna stendur leitni síðustu mánaða og árs nánast í stað þrátt fyrir nokkrar sveiflur í mælingum á vinnuafli, segir á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK