Davíð tekur við sem forstjóri Guide to Iceland

Davíð nýr forstjóri Guide to Iceland.
Davíð nýr forstjóri Guide to Iceland. Ljósmynd/Aðsend

Davíð Ólafur Ingimarsson hefur verið skipaður nýr forstjóri Guide to Iceland. Davíð gegndi áður stöðu aðstoðarforstjóra og fjármálastjóra fyrirtækisins. Þá hefur hann m.a. starfað sem fjármálastjóri Greenqloud, yfirmaður lánamála og sjóðastýringar hjá Landsvirkjun og setið í stjórn lífeyrissjóðs.

Xiaochen Tian, fráfarandi forstjóri, tekur við sem framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Guide to Iceland. Greint er frá breytingunum í tilkynningu frá félaginu.

Vilhelm Jensen, fráfarandi aðstoðamaður fjármálastjóra, tekur við sem nýr fjármálastjóri Guide to Iceland.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK