Ottó ráðinn framkvæmdastjóri innflutningssviðs Samskipa

Ottó Sigurðsson er framkvæmdastjóri innflutningssviðs Samskipa.
Ottó Sigurðsson er framkvæmdastjóri innflutningssviðs Samskipa. Ljósmynd/Aðsend

Ottó Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri innflutningssviðs Samskipa. Með ráðningunni snýr Ottó aftur til Samskipa, en hann var forstöðumaður innflutningsdeildar Samskipa frá 2013 til loka árs 2016.

Ottó kemur til Samskipa frá VÍS þar sem hann hefur frá 2017 gegnt stöðu forstöðumanns fyrirtækjaþjónustu. Áður starfaði hann hjá Vodafone, meðal annars sem forstöðumaður fyrirtækjasölu, að því er segir í tilkynningu.

Ottó lauk B.Sc.-prófi í viðskiptafræði frá Louisiana-háskóla í Lafayette í Bandaríkjunum árið 2004 og er liðtækur golfari, en á tímabili keppti hann sem atvinnumaður í golfi. Ottó er kvæntur Karen Lilju Sigurbergsdóttur og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK