Icelandair aldrei flutt fleiri farþega

Flugvél Icelandair.
Flugvél Icelandair. mbl.is/Eggert

Icelandair flutti 4,1 milljón farþega á árinu 2018, sem er meira en nokkru sinni fyrr. Fjölgunin nemur 2% frá fyrra ári. Sætanýting ársins nam 81,0% og dróst saman um 1,7 prósentustig samanborið við árið 2017. 

Þetta kemur fram í upplýsingum frá Icelandair um flutningstölur.

Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 319 þúsund og dróst saman um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 23% og flutt frakt um 7%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2018 var 80,1% samanborið við 81,2% árið 2017.

Icelandair flutti 263 þúsund farþega í desember og voru þeir 12% fleiri en í sama mánuði árið 2017. Framboðsaukning á milli ára nam 9% og sætanýting var 79,6% samanborið við 76,8% árið á undan.

Farþegar Air Iceland Connect í desember voru um 19 þúsund og fækkaði þeim um 17% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára ásamt niðurfellingum fluga vegna veðurs. Sætanýting nam 60,0% og jókst um 1,2 prósentustig á milli ára.

Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi dróst saman um 9% á milli ára og nýting lækkaði vegna viðhalds. Fraktflutningar jukust um 8% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 20% á milli ára. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 68,2% í desember 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK