Sjö vilja í stjórn Icelandair Group

Sjö hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Icelandair Group í þau fimm sæti sem í boði eru, en aðalfundur félagsins fer fram 8. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Þau sem bjóða sig fram eru Guðmundur Hafsteinsson, Guðný Hansdóttir, Heiðrún Jónsdóttir, Ómar Benediktsson, Svafa Grönfeldt, Úlfar Steindórsson og Þórunn Reynisdóttir, en Guðmundur, Heiðrún, Ómar og Úlfar sitja í fráfarandi stjórn félagsins.

Ásthildur Margrét Otharsdóttir gefur ekki áfram kost á sér í stjórninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK