Bónus kolefnisjafnar rekstur síðasta árs

Bónus er fyrsta matvöruverslun á Íslandi til að kolefnisjafna sinn …
Bónus er fyrsta matvöruverslun á Íslandi til að kolefnisjafna sinn rekstur. mbl.is/Hari

Bónus hefur kolefnisjafnað rekstur verslana sinna fyrir síðasta ár, en samningur þess efnis var undirritaður af fulltrúum Bónus og Kolviðar í dag. Bónus er fyrsta matvöruverslun á Íslandi sem kolefnisjafnar rekstur sinn.

Kolefnisfótspor Bónus árið 2018 var 667 CO2 tonn og mun Kolviður því planta 6.670 trjám á um það bil tveggja hektara svæði til að jafna út kolefnisfótsporið. 

Í tilkynningu frá Bónus kemur fram að í upphafi árs hófst vinna við að safna saman gögnum um hvert kolefnisspor verslana Bónus um land allt fyrir árið 2018. Reiknisvinnunni er nú lokið með aðstoð hugbúnaðarfyrirtækisins Klappir Grænar Lausnir hf. 

Umhverfisstjórnunarhugbúnaður fyrirtækisins hefur verið innleiddur inn í verklag Bónus sem mun hjálpa fyrirtækinu að ná enn betri árangri í umhverfismálum. Bónus hefur því fjárfest í kolefnisbindingu hjá Kolviði til að jafna út áhrif rekstursins á umhverfið. 

„Umhverfisvernd er eitt af stærstu verkefnum samtímans, og með þessu vill Bónus leggja sitt af mörkum og sýna um leið samfélagslega ábyrgð í verki,“ segir í tilkynningu frá Bónus. 

Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs, Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus og Anton …
Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs, Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus og Anton Birkir Sigfússon hjá Klöppum undirrituðu samning í dag um kolefnisjöfnun reksturs Bónus. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK