Sigríður Lára ráðin til Eignaumsjónar

Sigríður Lára Þorvaldsdóttir er nýráðinn sérfræðingur á fjármálasviði Eignaumsjónar.
Sigríður Lára Þorvaldsdóttir er nýráðinn sérfræðingur á fjármálasviði Eignaumsjónar.

Sigríður Lára Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á fjármálasviði Eignaumsjónar vegna aukinna umsvifa í starfsemi félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að Sigríður Lára muni sinna jöfnum höndum þjónustu við ört vaxandi viðskiptavinahóp Eignaumsjónar og greiningavinnu fyrir stjórnendur.

Sigríður Lára er með B.Sc gráðu frá Háskóla Íslands í viðskiptafræði af reikningsskilasviði og stundar fjarnám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Hún kemur til Eignaumsjónar frá fjármálasviði verkfræðistofunnar Mannvits. Þar áður starfaði hún hjá Borgun sem sérfræðingur í reikningshaldi.

Leiðandi í þjónustu við hús - og rekstrarfélög

Eignaumsjón hf. tók til starfa árið 2001 og er samkvæmt tilkynningunni leiðandi fyrirtæki hérlendis í þjónustu við hús- og rekstrarfélög með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og hagkvæmari. Félagið tók nýverið við allri starfsemi Húsastoðar og þjónustar nú hátt í 500 hús- og rekstrarfélög með nærri 12 þúsund íbúðum eða einingum. Starfsmenn eru 20 talsins og er félagið til húsa að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK