Karl ráðinn framkvæmdastjóri Ormsson

Verslun Bræðranna Ormsson er við Lágmúla.
Verslun Bræðranna Ormsson er við Lágmúla. Mynd af vefsíðu Ormsson

Karl Ottó Karlsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Ormsson ehf. Hann tók til starfa nú í júní. Hann tekur við af Andrési B. Sigurðssyni, sem starfaði hjá Ormsson frá 1993, lengst af sem framkvæmdastjóri.

Síðastliðið eitt og hálft ár hefur Karl verið við störf hjá Ormsson sem þjónustustjóri verkstæðis. Nú verður hann framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann starfaði áður hjá Bræðrunum Ormsson ehf. frá 2000 til 2002. 

Karl Ottó Karlsson er nýr framkvæmdastjóri Ormsson ehf.
Karl Ottó Karlsson er nýr framkvæmdastjóri Ormsson ehf. Ljósmynd/Aðsend

Karl er viðskiptafræðingur frá Handelshöjskole Syd í Kolding í Danmörku. Hann starfaði við útgerð, útgerðarstjórn og fjármál á Hornafirði um árabil, starfaði hjá Bræðrunum Ormsson ehf 2000 til 2002 sem deildarstjóri, fjármálastjóri hjá Frétt ehf., þjónustustjóri hjá rekstrarfélagi Véla og  þjónustu, skrifstofustjóri hjá Borgarplast, var kennari við Tækniskólann í 6 ár og starfaði við rekstrar- og fjámálaráðgjöf  fyrirtækja í 10 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK