Kröfu Samskipa vegna samstarfs hafnað

Kröfu og málsástæðum Samskipa, vegna undanþágu sem Samkeppniseftirlitið veitti vegna samstarfs Eimskips og Royal Arctic Line í sjóflutningum, hefur verið hafnað af áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Nefndin hefur ennfremur staðfest ákvörðun vegna samstarfsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni.

Fram kemur um forsögu málsins að þann 17. apríl hafi Samkeppniseftirlitið tekið ákvörðun þess efnis að grænlenska skipafélaginu Royal Arctic Line A/S og Eimskip væri veitt tímabundin heimild til samstarfs sem felur í sér samnýtingu á plássi í áætlunarskipum félaganna. „Samkeppniseftirlitið setti samstarfinu tiltekin skilyrði sem ætlað er að tryggja samkeppni á markaðnum. Eiga skilyrðin m.a. að tryggja aðgang grænlenska skipafélagsins að hafnaraðstöðu á Íslandi, auk þess sem stuðlað er að því að laust flutningspláss geti nýst almennum viðskiptavinum, umboðsmönnum og flutningamiðlunum. Með fyrrgreindu fyrirkomulagi verður grænlenska skipafélaginu kleift að bjóða upp á vikulegar áætlunarsiglingar til og frá Íslandi og þjónusta íslenska viðskiptavini – til hagsbóta fyrir íslenska neytendur, að mati Samkeppniseftirlitsins.“

Samskip kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um að ákvörðun eftirlitsins yrði felld úr gildi. „Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag birt úrskurð þar sem kröfu og málsástæðum Samskipa er hafnað. Í úrskurði sínum telur áfrýjunarnefndin að þau viðbótarskilyrði sem tekin voru upp í sátt Samkeppniseftirlitsins við undanþágubeiðendur, voru m.a. sett til að ýta undir samkeppni og tryggja að innkoma Royal Arctic Line á hinn skilgreinda markað hefði jákvæð samkeppnisleg áhrif og yrði til hagsbóta fyrir neytendur.“

Þá segir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála telji einnig að viðbótaskilyrðin innihaldi að sama skapi mikilvægt hegðunarskilyrði undanþágubeiðenda og veiti Samkeppnieftirlitinu tækifæri til að fylgjast náið með þróun markaðarins og þeirra breytinga sem kunna að verða á honum í ljósi samstarfs félaganna. Hafi Samkeppniseftirlitið þannig möguleika á að grípa inn í þá þróun gerist þess þörf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK