Íslensk orkumiðlun og Klappir grænar lausnir í samstarf

Magnús Júlíusson, framkvæmdastjóri Íslenskrar orkumiðlunar, og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri …
Magnús Júlíusson, framkvæmdastjóri Íslenskrar orkumiðlunar, og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa grænna lausna. Ljósmynd/Aðsend

Íslensk orkumiðlun og Klappir grænar lausnir hafa gert með sér samstarfssamning sem
veitir viðskiptavinum þeirra þann möguleika að nýta sér hugbúnað Klappa til að miðla
raforku- og umhverfisupplýsingum í gegnum sérstakt stjórnborð raforku. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Hugbúnaðarlausnin byggist á stafrænni tækni Klappa en fyrirtækin tvö vinna í sameiningu
að útfærslu á raforkustjórnborðinu. Markmiðið með samstarfinu er að veita fyrirtækjum
skilvirkt raforkustjórnborð til að fylgjast með raforkunotkun, draga úr rekstrarkostnaði,
bæta auðlindanýtingu og minnka sóun.  

„Við hlökkum mikið til vinna með Klöppum og hjálpa íslenskum fyrirtækjum að auka
sjálfbærni í rekstri og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum með því að nýta betur raforku.“ Þetta er haft eftir Magnúsi Júlíussyni, framkvæmdastjóri Íslenskrar orkumiðlunar, í tilkynningu. 

Af sama tilefni segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa grænna lausna: „Við erum hæstánægð með að Íslensk orkumiðlun hafi valið að leita til okkar hjá Klöppum um hugbúnaðarlausn sem heldur utan um flesta þætti raforkunotkunar og sölu raforku. Þetta er spennandi og þarft verkefni sem fellur vel að starfsemi Klappa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK