Upplýsi sem fyrst um aðstoð við fyrirtæki

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Ljósmynd/Aðsend

Félag atvinnurekenda hefur sent Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra erindi, þar sem hvatt er til þess að stjórnvöld greini þegar í stað frá því hvernig staðið verði að aðstoð við fyrirtæki sem skikkuð eru til að loka starfsemi sinni vegna sóttvarna með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra, sem var birt í gærkvöldi.

Frá þessu er greint á vef félagsins. Bent er á að í reglugerðinni sé kveðið á um að loka skuli skemmtistöðum, krám og spilasölum frá og með deginum í dag. Enn fremur skuli húsnæði líkamsræktarstöðva lokað almenningi og sé þeim þannig í raun gert að hætta rekstri næstu vikurnar.

Frestir fyrir lokunarstyrki liðnir

„Félag atvinnurekenda telur mikilvægt að samhliða þessum mjög svo íþyngjandi aðgerðum gagnvart tilteknum hópum fyrirtækja gefi stjórnvöld út með skýrum hætti hvort og þá hvernig verði komið til móts við fyrirtæki sem neyðast til að hætta rekstri í þessari bylgju faraldursins; hvort veittir verði lokunarstyrkir eins og í fyrstu bylgjunni eða komið til móts við fyrirtækin með öðrum hætti,“ segir í erindi félagsins.

Þar er enn fremur rifjað upp að frestur til að sækja um lokunarstyrk vegna heimsfaraldursins samkvæmt núgildandi lögum rann út 1. september og frestur til að sækja um viðbótarlokunarstyrk rann út 1. október.

Skjót vinnubrögð skipti máli

„Að mati FA eru skýrar línur í þessu efni mikilvægar, bæði til að tryggja skilvirkni sóttvarnaraðgerða sem stjórnvöld hafa mælt fyrir um, og til að veita atvinnurekendum í viðkomandi greinum meiri fyrirsjáanleika um hvers vænta má um stuðningsaðgerðir stjórnvalda. Skjót vinnubrögð skipta hér miklu máli,“ segir í bréfinu til ráðherranna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK