Nýtt millibankagreiðslukerfi verður tekið í notkun hér á landi á föstudagskvöld. Stór hluti allra fjármálafærslna einstaklinga og fyrirtækja í landinu, til dæmis með debetkortum og almennum millifærslum á milli reikninga, fer um kerfið sem þjónustar banka og fjármálastofnanir.
Nýja kerfið, sem er í eigu Seðlabanka Íslands, tekur við hlutverki svokallaðs stórgreiðslukerfis Seðlabankans og jöfnunarkerfis Greiðsluveitunnar sem jafnframt er í eigu bankans, að því er segir í tilkynningu.
Hlutverk nýja millibankagreiðslukerfisins verður annars vegar að gera upp stórgreiðslur, þ.e. greiðslur sem nema 10 milljónum króna eða hærri fjárhæðum, í rauntíma á stórgreiðslureikningum bankastofnana í Seðlabankanum og hins vegar að jafna smágreiðslur, þ.e. greiðslur undir 10 milljónum króna á milli bankastofnana. Jöfnunarfjárhæðir úr þessum viðskiptum eru svo gerðar upp á stórgreiðslureikningum tvisvar á sólarhring (á virkum dögum).
Á síðasta ári var veltan í stórgreiðslukerfinu 17 þúsund milljarðar króna í um 118 þúsund greiðslufyrirmælum. Í jöfnunarkerfinu var veltan rúmlega fjögur þúsund milljarðar króna og færslufjöldinn ríflega 68 milljónir.
Nýja millibankagreiðslukerfið hefur verið í undirbúningi frá árinu 2015. Gerð þess var boðin út og hlaut suðurafríska fyrirtækið Perago verkið. Perago er dótturfélag SIA, sem er ítalskt félag. Bæði fyrirtækin hafa tekið þátt í uppbyggingu hliðstæðra kerfa í norrænum seðlabönkum.
Verkefnið hefur verið unnið í nánu samstarfi við Reiknistofu bankanna, viðskiptabankana og sparisjóði landsins. Ástæða endurnýjunarinnar er sú að gömlu kerfin eru komin til ára sinna og þörfnuðust endurnýjunar.