Icelandair ætlar að fljúga til 32 áfangastaða

Icelandair stefnir að því að fljúga til 32 áfangastaða í millilandaflugi sumarið 2021. Tenerife verður nýr áfangastaður í leiðakerfi flugfélagsins. Þá stefnir Air Iceland Connect að því að hefja áætlunarflug til Vestmannaeyja í innanlandsflugi næsta sumar.

Flugáætlun Icelandair og Air Iceland Connect fyrir árið 2021 er komin í sölu og er hún minni í sniðum en síðustu ár vegna kórónuveirunnar. Gert er ráð fyrir að heildarsætaframboð verði um 25-30% minna en sumarið 2019. Uppbygging leiðakerfis Icelandair verður einfaldari og áhersla verður lögð á lykiláfangastaði félagsins, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Einföldun leiðakerfisins gerir félaginu kleift að bregðast hratt við síbreytilegum markaðsaðstæðum en áfram er gert ráð fyrir að aðlaga þurfi framboð að eftirspurn eftir því sem fram vindur,“ segir í tilkynningunni.

Flugáætlunin er háð því að áhrif Covid-19 fari minnkandi á mörkuðum félagsins í Evrópu og N-Ameríku og að fyrirkomulag landamæraskimunar hér á landi hafi ekki jafn takmarkandi áhrif á ferðalög og nú er raunin.

Félagið áætlar að fljúga til 22 áfangastaða í Evrópu, þ.e. Osló, Bergen, Kaupmannahafnar, Billund, Stokkhólms, Helsinki, Amsterdam, Parísar, Berlínar, Hamborgar, Frankfurt, Munchen, Genf, Zurich, Brussel, London, Glasgow, Manchester, Dublin, Madrid, Mílanó og Tenerife.

Þá áætlar félagið að fljúga til tíu áfangastaða í N-Ameríku, þ.e. Boston, New York, Seattle, Minneapolis, Washington, Denver, Chicago, Toronto, Vancouver og Montreal. Félagið mun jafnframt fljúga reglulega til Alicante í leiguflugi.

Yfir 90% hefur verið endurgreitt

Icelandair hefur uppfært bókunarskilmála félagsins með það að markmiði að auka sveigjanleika fyrir farþega. Ef flugi er aflýst býður flugfélagið farþegum upp á flug í gegnum aðra áfangastaði félagsins eða með samstarfsflugfélögum án auka kostnaðar. Þeir sem ætla sér ekki að ferðast og flug hefur verið fellt niður geta auðveldlega gert breytingar á flugbókun án breytingargjalds, óskað eftir inneign sem gildir í þrjú ár eða endurgreiðslu, að því er segir í tilkynningunni. 

Allir farþegar sem eiga flug hjá félaginu á næstunni geta breytt flugbókun sinni hvenær sem er án þess að greiða breytingargjald eða óskað eftir inneign. Fram kemur í tilkynningunni að endurgreiðsluferlar félagsins hafi verið uppfærðir og hefur félagið að mestu leyti lokið endurgreiðslu þess gríðarlega fjölda endurgreiðslubeiðna sem hafa borist á undanförnum mánuðum, eða yfir 90%.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Kristinn Magnússon

Forstjórinn horfir til framtíðar

„Þrátt fyrir núverandi aðstæður vegna útbreiðslu kórónuveirunnar er mikilvægt að horfa til framtíðar. Við vinnum hörðum höndum að því að undirbúa viðspyrnuna svo við getum brugðist hratt við um leið og staðan breytist til hins betra,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.

„Flugáætlun Icelandair fyrir sumarið 2021 byggir á þeim forsendum að aðstæður á mörkuðum okkar séu farnar að batna, ferðatakmarkanir hafi verið rýmkaðar og að reglur á landamærum á Íslandi hafi ekki jafn takmarkandi áhrif á ferðalög og nú er. Með enn sveigjanlegri bókunarskilmálum viljum við gera fólki kleift að bóka flug án þess að hafa áhyggjur – við komum öllum sem ætla að ferðast á áfangastað og leyfum breytingar á flugbókun hvenær sem er án auka kostnaðar.

Það er markmið okkar að tryggja öflugar flugsamgöngur til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið. Þá höfum við fulla trú á því að Ísland verði áfram eftirsóttur áfangastaður ferðamanna og þess vegna er mikilvægt að tryggja að íslenskir ferðaþjónustuaðilar verði vel í stakk búnir til að taka á móti ferðamönnum á ný. Við ætlum að vera tilbúin um leið og aðstæður leyfa og leiða þá uppbyggingu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK