Ásprent Stíll gjaldþrota

Merki fyrirtækisins Ásprent Stíll.
Merki fyrirtækisins Ásprent Stíll.

Prentsmiðjan Ásprent Stíll á Akureyri hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram í Vikublaðinu. Þar segir einnig að starfsfólk hafi ekki fengið greidd út laun um mánaðamótin. 

Rekstur félagsins hefur að sögn Vikublaðsins verið þungur undanfarið en Covid-19 hafi haft þau áhrif að ekki yrði séð fram úr honum. 

Fjárhagsleg endurskipulagning með lánardrottnum félagsins tókst ekki og hefur skiptastjóri verið skipaður yfir eignum þess. Starfsemi mun halda áfram í sömu mynd þangað til annað verður ákveðið.

Gjaldþrot Ásprents mun ekki hafa áhrif á útgáfu Vikublaðsins, Dagskrárinnar og Skrárinnar sem eru héraðsmiðlar á Akureyri og nágrenni, gefin út af Útgáfufélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK