Heimilt að framkvæma endurkaupaáætlun

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt Arion banka heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun á eigin bréfum á Íslandi og á heimildarskírteinum útgefnum í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.  

Heimildin sem um ræðir nær til allt að 150.000.000 hluta fyrir um 15 milljarða króna, sem nemur um 8,7% af útgefnu hlutafé bankans. 

„Í kjölfar vel heppnaðs útboðs bankans á AT1-skuldabréfum í febrúar 2020 að andvirði um 13 milljarða króna og í ljósi mjög sterkrar eiginfjárstöðu veitti aðalfundur Arion banka þann 16. mars 2020 stjórn bankans endurnýjaða heimild til að kaupa allt að 10% af útgefnu hlutafé bankans,“ segir í tilkynningunni.  

Óvissa vegna Covid-19 hefur minnkað

Í tilkynningunni kemur þá fram að í ljósi verulegrar óvissu vegna Covid-19-heimsfaraldursins voru hins vegar bæði arðgreiðslur og endurkaup eigin bréfa sett á bið í samræmi við tilmæli Seðlabanka Íslands. Segir þá einnig að á síðastliðnum mánuðum hafi óvissan þó minnkað á sama tíma og fjárhagslegur styrkur Arion banka hélt áfram að aukast. 

Áform um framkvæmd endurkaupaáætlunar bíða  ákvörðunar stjórnar Arion banka. Upplýstverður um ákvörðun hennar samhliða birtingu ársuppgjörs bankans þann 10. febrúar næstkomandi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK