Ósk Heiða nýr forstöðumaður hjá Póstinum

Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu og markaða.
Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu og markaða. Ljósmynd/Aðsend

Ósk Heiða Sveinsdóttir er nýr forstöðumaður þjónustu og markaða hjá Póstinum og fer því úr fyrra starfi sem markaðsstjóri fyrirtækisins. Ósk Heiða hefur á ferli sínum meðal annars starfað sem markaðsstjóri Krónunnar, Trackwell og Íslandshótela, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Ósk Heiða er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands.

„Ég er mjög ánægð og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka til að takast á við verkefnin sem fram undan eru. Á undanförnum misserum hafa verið tekin mikilvæg skref til þess að  standa nær viðskiptavinum þar sem áhersla er á bætta þjónustu, fleiri afhendingarleiðir, stafræna þróun og að eiga þétt samtal við markaðinn,“ segir Ósk Heiða Sveinsdóttir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK