Afkomuspá Festar hf. hækkar um 900 milljónir

Rekstur ársfjórðungsins hefur gengið umfram áætlanir hjá N1, ELKO og …
Rekstur ársfjórðungsins hefur gengið umfram áætlanir hjá N1, ELKO og Krónunni. Ljósmynd/Aðsend

Afkomuspá Festar hf. hefur verið hækkuð vegna betri afkomu félagsins en EBITDA jókst um 0,8 milljarða frá árinu áður. 

EBITDA fjárfestingafélagsins Festi hf. nemur 2,5 milljörðum samkvæmt drögum að uppgjöri annars ársfjórðungs 2021. Er þetta 0,8 milljarða aukning frá árinu áður en þá nam EBITDA 1,7 milljörðum króna.

Í uppfærðri afkomuspá félagsins segir að rekstur ársfjórðungsins hafi gengið umfram áætlanir hjá N1, ELKO og Krónunni en í samanburðinum höfðu áhrif Covid-19 heimsfaraldursins umtalsverð neikvæð fjárhagsleg áhrif á fjórðunginn í fyrra. 

Afkomuspá ársins hækkar í 9,2 milljarða

Í ljósi betri afkomu félagsins og mati stjórnenda á horfum út árið þá er EBITDA spá félagsins hækkuð um 900 milljónir króna. Hún fer þannig úr 8,8 í 9,2 milljarða. 

Söluhagnaður af fasteignum sem tilkynnt var um þann 30. júní 2021 er ekki tekinn með í afkomuspá ársins vegna þess að fyrirvörum um viðskiptin hefur ekki verið aflétt. 

28. júlí næstkomandi verður árshlutareikningur annars ársfjórðungs birtur. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður svo haldinn á Dalvegi 10 - 14 á þriðju hæð, fimmtudaginn 29. júlí klukkan 8:30. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK