Öryggismiðstöðin í samstarf við Rapiscan

Reynir Sævar Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Öryggismiðstöðinni og Skarphéðinn Eiríksson, …
Reynir Sævar Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Öryggismiðstöðinni og Skarphéðinn Eiríksson, sérfræðingur hjá Öryggismiðstöðinni. Ljósmynd/Öryggismiðstöðin

Öryggismiðstöðin er nýr samstarfsaðili Rapiscan sem þróar og framleiðir hátækniöryggisbúnað fyrir m.a. flugvelli, hafnir og fangelsi. Rapiscan búnaður er nú þegar í notkun víða hérlendis og tekur Öryggismiðstöðin við allri þjónustu, sölu og ráðgjöf á þeim til viðskiptavina.

Þetta segir í fréttatilkynningu þar um. 

„Samstarf okkar við Rapsican er stór og mikilvægur áfangi fyrir okkur enda er fyrirtækið leiðandi í þróun og framleiðslu m.a. á hátæknivæddum myndgreiningarbúnaði og skimunarlausnum. Það er gríðarleg þróun í þessum öryggisbúnaði sem er ætlaður til að skima eftir ýmsum ólöglegum, hættulegum og bönnuðum hlutum. Myndgreining og skimunarlausnir eru notaðar til að skima fólk og farangur.

Nýjasti búnaðurinn skimar allt frá SIM korti í síma uppí 40 feta gám. Nýjustu tæknilausnir Rapiscan bjóða t.d. upp á sneiðmyndatökur af farangri. Þannig sýnir búnaðurinn þrívíddarmyndir á skjánum fyrir viðkomandi starfsmenn flugvallar, hafnar eða fangelsis sem greinir mun meira en hin hefðbundna X-ray tækni sem er í gangi núna," er haft eftir Reyni Sævari Ólafssyni, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Öryggismiðstöðinni, í fréttatilkynningunni.

Greina sprengiefni og fíkniefni

Reynir segir að helstu tækin séu gegnumlýsingarvélar, snefilgreinar, sem greina t.d. sprengiefni og fíkniefni, málmleitarhlið og gegnumlýsingarbílar fyrir stærri einingar eins og gáma. Teknar eru strokur t.d. af persónulegum munum farþega og þær greindar í snefilgreini sem síðan nemur hvort um sé að ræða ólögleg eða hættuleg efni eður ei. Nú þegar er ýmis búnaður frá Rapiscan í notkun hér á landi m.a. á Keflavíkurflugvelli, í fangelsum og hjá tollgæslu.

Skarphéðinn Eiríksson, sérfræðingur hjá Öryggismiðstöðinni, segir mikla endurnýjun í gangi hvað varðar þróun og framleiðslu á þessum búnaði.

„Nú þegar flugið fer á fullt aftur eftir Covid-19 eru þessar öryggislausnir enn stærri þáttur og mikilvægari en áður. Í nýjustu útgáfum af þessum búnaði er sú breyting að farþegar þurfa ekki lengur að taka vökva eða spjald- og fartölvur upp úr handfarangri við öryggisleit á flugvöllum. Þetta mun þýða mikinn tímasparnað og þægindi fyrir farþega og starfsmenn flugvalla. Flæðið í vopnaleit flugvalla verður mun hraðara og betra án þess að það sé slegið af öryggiskröfum," er haft eftir Skarphéðni.

Skarphéðinn segir að tæknisérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar þurfi að fá mjög ítarlega þjálfun varðandi öryggisbúnaðinn.

„Þetta er mikið og strangt ferli sem við þurfum að standast. Okkar starfsfólk fær mjög ítarlega þjálfun enda eru gerðar miklar kröfur þegar svona mikilvægur og hátæknivæddur öryggisbúnaður á í hlut. Með þessum búnaði frá Rapiscan erum við að bjóða upp á afar öflugar öryggislausnir fyrir markaðinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK