Einar Þór fer til Tix.is

Einar Þór Gústafsson
Einar Þór Gústafsson Ljósmynd/Tix

Einar Þór Gústafsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá Tix. Þetta segir í fréttatilkynningu þar um, þar sem kemur fram að síðastliðna mánuði hafi Einar unnið sem rekstrarstjóri hjá Aranja.

Einar var einn stofnenda Getlocal ehf. og stýrði vöru- og viðskiptaþróun þar. Hann hefur einnig gegnt stöðu framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá bæði Meniga og Bókun ehf., auk þess sem hann hefur sinnt stöðu forstöðumanns vefdeildar Íslandsbanka og þróunarstjóra Netbanka Glitnis.

Einar var meðal stofnanda SVEF, Samtaka vefiðnaðarins, og formaður samtakanna frá 2009 til 2013 Hann er með gráðu í margmiðlun frá SAE í New York ásamt verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

Tix er íslenskt miðasölufyrirtæki sem er hóf útrás út fyrir landsteinana árið 2017 þegar það opnaði í Danmörku, Færeyjum, Noregi og Svíþjóð. Þá annast Tix.is einnig miðasölu í Belgíu og Hollandi og eru viðskipti fyrirhuguð í Bretlandi á næstunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK