19,6 m.kr. greiddust upp í kröfur

Jói Fel rak fjölda bakaría en er nú með Felino …
Jói Fel rak fjölda bakaría en er nú með Felino í Listhúsinu. mbl.is/Arnþór

Skiptafundur þrotabús bakarískeðjunnar Hjá Jóa Fel-brauð/kökulist ehf. fór fram í vikunni en búið var tekið til gjaldþrotaskipta í september 2020.

Arnar Þór Stefánsson skiptastjóri segir í samtali við Morgunblaðið að skiptum hafi verið lokið á fundinum og að kröfur í búið hafi numið 333 milljónum króna. Þar af hafi samþykktar kröfur verið 141 milljón.

Alls greiddust 19,8 milljónir króna upp í samþykktar kröfur eða 14,1% að sögn Arnars Þórs.

„Það fengust fjármunir fyrir rekstur, lausafé, tæki og tól og einnig innheimtust einhverjar útistandandi kröfur. Þá fundust inneignir á bankareikningum og skattgreiðsla í ríkissjóð fékkst endurgreidd,“ segir hann.

Lífeyrissjóðir og starfsmenn

Spurður um helstu kröfuhafa segir Arnar að það hafi einkum verið starfsmenn með launakröfur og lífeyrissjóðir.

Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á sínum tíma krafðist Lífeyrissjóður verslunarmanna gjaldþrotaskiptanna vegna vangoldinna iðgjalda sem fyrirtækið hafði innheimt af launum starfsfólks en ekki skilað til sjóðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK