Margfalt fleira launafólk hjá gjaldþrota fyrirtækjum

Áhrifin eru þó ekki meiri núna en fyrir kórónuveirufaraldurinn.
Áhrifin eru þó ekki meiri núna en fyrir kórónuveirufaraldurinn. mbl.is/Hákon Pálsson

Gjaldþrotaskipti á öðrum ársfjórðungi þessa árs höfðu stóraukin áhrif frá fyrra ári en fjöldi launafólks hjá fyrirtækjunum sem um ræðir voru margfalt meiri á þessu ári en árinu á undan. 103 fyrirtækjanna sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum ársfjórðungi höfðu virkni á síðasta ári en þau voru 24 árið 2022.

 „Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum ársfjórðungi 2023 höfðu að jafnaði um 579 launamenn árið áður sem er nærri fimmfalt fleira en á öðrum ársfjórðungi 2022 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru um 117. Greinilegt er að gjaldþrot á öðrum ársfjórðungi höfðu stóraukin áhrif frá fyrra ári þvert á atvinnugreinar, hvort sem miðað er við fjölda launafólks eða virðisaukaskattskylda veltu,“ segir á vef Hagstofu Íslands.

Óvenju lítil áhrif áður 

Þá er bent á að áhrif gjaldþrota á fjölda launafólks hafi verið óvenju lítil frá miðbiki árs 2021 til hausts 2022. Þá virðist áhrif gjaldþrota ekki meiri núna en fyrir kórónuveirufaraldurinn.

„Ef horft er lengra aftur í tímann sést að launafólki gjaldþrota fyrirtækja á öðrum ársfjórðungi 2023 fjölgaði um 16,5% frá 2021 (úr 497) en fækkaði um 47% frá 2020 (úr 1.085) sem er ársfjórðungurinn sem markar upphaf kórónuveirufaraldursins. Ef borið er saman við annan ársfjórðung 2019 nemur fækkunin 25% (úr 773).“

Í júní var 121 fyrirtæki tekið til gjaldþrotaskipta en af þeim höfðu 28 virkni á fyrra ári. Það þýðir að annað hvort var fyrirtækið með launamenn samkvæmt staðgreiðsluskrá eða virðisaukaskattskýrslum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK