Svens braut gegn auglýsingabanni

mbl.is/Eggert

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að Svens hafi brotið gegn auglýsingabanni á nikótínvörum með auglýsingum á samfélagsmiðlum og með merkingum á verslunum og bílum félagsins.

Svens kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem nú hefur staðfest hana.

Fram kemur á vef Neytendastofu, að í úrskurði áfrýjunarnefndar komi fram að hún telji meðalhófs hafa verið gætt við setningu laga sem banni auglýsingar á nikótínvörum þrátt fyrir að tjáningarfrelsi Svens og annarra sem selji nikótínvörur hafi verið skert.

Fari ekki á milli mála hvað er verið að auglýsa

Þá kemur fram, að hin kærða ákvörðun snúi að kynningu á vörum sem innihaldi ekki nikótín og við skýringu á ákvæðum laganna þurfi að líta til þess að þau feli í sér takmörkun á stjórnarskrárbundnum réttindum.

Þrátt fyrir það verði einnig að gera ákveðnar kröfur um að ekki fari á milli mála að þær vörur sem auglýstar eru falli utan auglýsingabannsins. Auglýsingar sem geti átt við um bæði nikótínvörur og nikótínlausar vörur verði því taldar falla undir bannið, að því er segir á vef Neytendastofu. 

Áfrýjunarnefndin fjallar því næst um auglýsingar Svens og kemst að þeirri niðurstöðu að þær séu ekki nægilegar skýrar um að auglýstar vörur séu nikótínlausar og brjóti þar með gegn auglýsingabanni. Þá fjallar nefndin um háttsemi Svens feli brjóti í bága við góða viðskiptahætti.

Ákvörðun Neytendastofu var því staðfest að öllu leyti, segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK