Amaroq fann mikið af nickel-kopar

Eldur Ólafsson skoðar sýni í gullnámu Amaroq í Nalunaq á …
Eldur Ólafsson skoðar sýni í gullnámu Amaroq í Nalunaq á Grænlandi. Stefán Einar

Námufyrirtækið Amaroq Minerals, sem býr yfir námuvinnsluréttindum á landi sem hefur að geyma verulegt magn af gulli í jörðu auk annarra verðmætra málma á Suður-Grænlandi, hefur fundið mikið af nickel-kopar í Stendalen verkefninu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

140 m þykkt lag

Þar segir að yfir 140 m þykkt lag af því sem er kallað „disseminated“ kviku súlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt hafi fundist í gríðarlega stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen. Jafnframt kemur fram að súlfíðahlutfall hingað til sé í lægri kantinum og dreift og muni Amaroq nota niðurstöðurnar til að sækja enn frekar í þann hluta sem búist er við að það sé þéttara, eins og það er orðað í tilkynningunni.

Einnig segir að jarðfræðirannsóknir sýni fram á hvar aðalsvæðið er og muni fyrirtækið einbeita sér að því á árinu. „Mikilvægt er að horfa til þess að samsetningin, svo sem magn og áferð, benda til að hún sé sambærileg við bestu nikkel-kopar námur í heiminum. Magnið af nikkeli, kopari og kóbalti innan súlfíðana virðist gríðarlega hátt eða um 3-5% nikkel/kopar sem sýnir gæði Stendalen svæðisins. Einnig er gott að nikkelið og koparinn séu í súlfíðinu því þá er auðvelt að kljúfa þau frá berginu sem er mun umhverfvænna ferli.“

Fyrsta á 6 km svæði

Tilraunaborunin, sem var framkvæmd árið 2023, var sú fyrsta á svæði sem er um 6 km í þvermál. Því er mögulegt að í Stendalen finnist fjölmörg önnur verðmæt málmgrýtissvæði.
Fyrirtækið telur samkvæmt fréttatilkynningunni að þessar niðurstöður réttlæti enn frekari rannsóknir og hefur það hafið undirbúning að frekari rannsóknum með borunum á að minnsta kosti þremur stöðum til viðbótar. Verður sérstakt rannsóknarteymi tengt því sett á fót á þessu ári.

„Fundur á borð við þann sem átti sér stað í Stendalen er afrakstur margra ára vinnu jarðfræðiteymis Amaroq og ber vitni um þá miklu trú sem við höfum haft á þeim tækifærum sem Suður-Grænland býður upp á. Mikilvægi þess að finna kopar og nikkel, sem eru afar nauðsynlegir málmar fyrir orkuskipti, í landi sem er jafn vel staðsett, verður ekki undirstrikað nægilega vel. Þessar fyrstu niðurstöður gera það að verkum að við getum nú sett enn meiri kraft í verkefnið, sem nú þegar er að fullu fjármagnað næstu ár,“ segir Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq í tilkynningunni.

Lagði fram tímamótaspár

James James Gilbertson aðstoðarforstjóri rannsókna hjá Amaroq segir í tilkynningunni að jarðfræðiteymi félagsins hafi lagt fram tímamótaspár í kjölfar nákvæmra rannsókna á Suður-Grænlandi og hann sé afar þakklátur stjórnum Amaroq og samstarfsfélagsins Gardaq JV fyrir að hafa trú á rannsóknum þeirra og heimila þeim að gera þær.

„Niðurstöðurnar fara fram úr okkar björtustu vonum. Jafnvel þó málmhlutfallið sé tiltölulega lágt, eru eiginleikar bergsins þannig að útlit er fyrir að þarna gæti fundist mjög hátt hlutfall af nikkeli, kopari og kóbalti sem líklegt er að sverji sig í ætt við stærstu hágæða nikkel-kopar námur líkt og í Talnakh (Noril’sk), Sudbury og Voisey’s Bay.

Að auki benda niðurstöður til að hágæða málmar finnist á svæðinu, sem er meginmarkmið rannsókna ársins. Þetta er aðeins upphafið að því sem koma skal í Stendalen, framundan eru frekari jarðfræðirannsóknir og tilraunaboranir. Góður árangur verkefnisins eykur verulega líkurnar á að finna fleiri tegundir verðmætra málma á svæðum Amaroq og staðfestir þau miklu tækifæri sem eru á Suður-Grænlandi.”

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK