Ríkið gefur út 111 milljarða skuldabréf: níföld eftirspurn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra segir að fjármögnunin styrki getu …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra segir að fjármögnunin styrki getu ríkissjóðs til að mæta enn frekar þeim áskorunum sem ríkið standi frammi fyrir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins

Þar segir að fjárfestar hafi sýnt útgáfunni mikinn áhuga og að eftirspurnin hafi numið um 7 milljörðum evra eða rúmlega nífaldri fjárhæð útgáfunnar. Fagfjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum, bönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Norður-Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum JP Morgan, BNP Paribas, DZ bank og Nomura, að því er ráðuneytið greinir frá.

„Það er einkar ánægjulegt að sjá það mikla traust sem fyrstu útgáfa grænna skuldabréfa fær frá fjölbreyttum hópi alþjóðlegra fjárfesta. Þetta er til marks um trúverðugleika stefnu okkar í ríkisfjármálum og umhverfismálum, sem undirstrikar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum tekist á hendur. Þessi mikli áhugi er ekki síður til marks um það traust sem fjárfestar bera til Íslands og ímynd landsins sem fyrirmyndar á sviði umhverfismála,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra.

Án fordæma

Þá kemur fram, að fjárfestahópurinn hafi talið um 280 aðila sem sé mesti fjöldi sem tekið hafi þátt í einstöku útboði á erlendum skuldabréfum ríkissjóðs. Níföld heildareftirspurn hafi að sama skapi verið án fordæmis.

„Útgáfan nú er í samræmi við þá stefnu sem við höfum sett fram í lánamálum og er hluti af aðgerðaráætlun í loftslagsmálum. Andvirði útgáfunnar verður nýtt til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna umhverfismála á næstu árum. Fjármögnunin styrkir getu okkar til að mæta enn frekar þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Rífleg eftirspurn og kjör ríkissjóðs bera einnig með sér traust á stjórn efnahags- og ríkisfjármála, " segir Þórdís enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK