Play skiptir um forstjóra

Birgir Jónsson, forstjóri Play, hefur látið af störfum hjá flugfélaginu. Í tilkynningu frá Play segir að Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins hafi tekið við sem forstjóri. 

Í tilkynningunni segir að stjórn Fly Play hf. og Birgir hafi í dag gert samkomulag um starfslok hans. 

Einar Örn er einn stærsti einstaki hluthafi félagins og stjórnarformaður þess síðan í apríl 2021. Hann hefur dregið framboð sitt til stjórnar til baka en stjórnarkjör fer fram á aðalfundi félagsins þann 21. mars næstkomandi að því er segir í tilkynningunni. 

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni. Eftir kröftugt uppbyggingarstarf síðustu ára undir öflugri forystu Birgis er félagið á ákveðnum tímamótum. Sem stærsti einstaki hluthafi félagsins vil ég fylgja fjárfestingu minni eftir. Ég þekki vel til starfsemi og starfsmanna Play og sé mörg tækifæri og spennandi viðfangsefni framundan í rekstrinum. Ég er þakklátur stjórn Play fyrir traustið og vil líka þakka Birgi sérstaklega fyrir framlag hans til Play og ánægjulegt og gott samstarf,“ er haft eftir Einari. 

Einar Örn hefur tekið þátt í rekstri ýmissa félaga bæði sem fjárfestir og stjórnandi. Hann er stjórnarformaður Terra hf. og var áður forstjóri Fjarðarlax og Skeljungs ásamt því að búa yfir viðamikilli starfsreynslu á fjármálamarkaði. Einar Örn útskrifaðist með MBA gráðu frá NYU, Stern School of Business árið 2003 og er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

„Það hefur verið ævintýri líkast að taka þátt í uppbyggingu Play. Á tiltölulega skömmum tíma er orðið til öflugt íslenskt lággjaldaflugfélag með framúrskarandi vöru og þjónustu og bjarta framtíð. Virk samkeppni í flugi sem skilar sér í lægri fargjöldum, fjölbreyttum áfangastöðum og verðmætum erlendum gestum er sérstaklega mikilvæg fyrir eyju eins og okkar. Slík samkeppni varðar hagsmuni allra Íslendinga. Ég geng þess vegna ákaflega stoltur frá borði. Play hefur nú slitið barnsskónum og er orðið þroskað flugfélag. Ég hef átt gott og náið samband við Einar og félagið er í góðum höndum hjá honum. Ég hlakka til að sjá félagið blómstra undir hans forystu. Ég vil þakka viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir einkar ánægjulegt samstarf. Ég mun svo kveðja stórkostlegan hóp starfsmanna á næstu dögum,“ er haft eftir Birgi.

Birgir mun starfa áfram hjá félaginu fram til 2. apríl næstkomandi og mun í framhaldinu verða félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK