Nýir stjórnendur hjá Styrkási

Gunnar Skúlason, Jóhanna Helga Viðarsdóttir og Linda Björk Halldórsdóttir.
Gunnar Skúlason, Jóhanna Helga Viðarsdóttir og Linda Björk Halldórsdóttir.

Þrír stjórnendur hafa verið ráðnir til Styrkáss, allir koma þeir frá dótturfélögum innan samstæðunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Styrkási, móðurfélagi Skeljungs og Kletts.

Gunnar Skúlason og Jóhanna Helga Viðarsdóttir hafa verið ráðin í framkvæmdastjórn Styrkáss. Þá hefur Linda Björk Halldórsdóttir verið ráðin forstöðumaður Mannauðs hjá Styrkási.

Gunnar tekur við starfi fjármálastjóra og leiðir uppbyggingu fjármálasviðs Styrkáss. Gunnar starfaði áður sem sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Skeljungi og ráðgjafafyrirtækinu Expectus. Hann kemur frá Kletti – sölu og þjónustu þar sem hann gegndi starfi fjármálastjóra.

Gunnar er með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í aðgerðarrannsóknum frá DTU í Danmörku segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að Jóhanna Helga verður framkvæmdastjóri Innri þjónustu en undir sviðið heyra sjálfbærni- og gæðamál, mannauðsmál, samhæfing markaðsmála og verkefnastýring lykilverkefna á samstæðugrunni.

Jóhanna er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu en hún hefur starfað sem stjórnandi hjá Símanum, Reiknistofu bankanna, 365 miðlum, Torgi og síðast Skeljungi þar sem hún hefur verið í starfi framkvæmdastjóra Sjálfbærni og stafrænnar þróunar frá árinu 2022.

Linda Björk Halldórsdóttir er nýr forstöðumaður Mannauðs en starfið tilheyrir sviði Innri þjónustu Styrkáss. Linda kemur til Styrkáss frá Skeljungi þar sem hún hefur sinnt starfi mannauðsstjóra frá árinu 2018. Linda er með mastersgráðu í Mannauðsstjórnun og B.S í Viðskiptafræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK