Í vikubyrjun var hafist handa við að reisa stálgrind fyrir nýjan klefa frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar á Eiði. Pólskt fyrirtæki framleiðir húsið og reisir það. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði tilbúin í sumar og nýtist á komandi makrílvertíð.
Gólfflötur frystigeymslunnar nær þrefaldast með viðbyggingunni. Núverandi frystiklefi er tæplega 2.000 fermetrar og þjónusturýmið er liðlega 300 fermetrar. Nýbyggingin verður tvískipt á alls 3.800 fermetrum, að því er fram kemur á vefsvæði Vinnslustöðvarinnar.
Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 metrar í nýja hlutanum.
Í nýbyggingunni verður mótordrifið kerfi hreyfanlegra rekka sem stuðlar að betri nýtingu geymslurýmisins og gerir mun auðveldara og aðgengilegra en ella að setja frystivörur í klefana og taka úr þeim aftur.
Aðalverktaki við stækkun frystigeymslunnar er Eykt, sá hinn sami og annaðist framkvæmdir við nýja uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.
Pólskur undirverktaki reisir stálgrindahúsið, Yabimo frá borginni Tarmow í suðausturhluta Póllands. Þetta er stórt og mikið iðnfyrirtæki sem reisir stálmannvirki af ýmsu tagi og annars konar hús og mannvirki, svo sem brýr.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 23.867 kg |
Samtals | 23.867 kg |
19.9.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 315 kg |
Þorskur | 82 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Samtals | 412 kg |
19.9.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 13.490 kg |
Þorskur | 5.608 kg |
Steinbítur | 666 kg |
Karfi | 512 kg |
Samtals | 20.276 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 23.867 kg |
Samtals | 23.867 kg |
19.9.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 315 kg |
Þorskur | 82 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Samtals | 412 kg |
19.9.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 13.490 kg |
Þorskur | 5.608 kg |
Steinbítur | 666 kg |
Karfi | 512 kg |
Samtals | 20.276 kg |