„Við erum búnir að taka eitt kast. Þetta byrjar helvíti vel, fengum þúsund tonn í fyrsta kastinu,“ segir Tómas Kárason, skipstjóri á nóta- og togveiðiskipinu Beiti NK sem gert er út af Síldarvinnslunni í Neskaupstað, en skipið er við loðnuveiðar út af Breiðamerkursandi ásamt fleiri uppsjávarskipum. Fiskiskipaflotinn lagði úr höfn í gær í kjölfar þess að samningar náðust í kjaradeilu sjómanna og er nú reynt að bjarga loðnuvertíðinni.
„Þetta er bara stór og feit loðna, átulaus,“ segir Tómas aðspurður. „Það er náttúrulega liðið nokkuð. Það hefði verið ágætt að byrja svolítið fyrr en það er eins og það er.“ Beitir NK getur lestað um 3.200 tonn. Sigurður VE frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum er einnig á sömu slóðum og var tiltölulega nýkominn á staðinn og byrjaðir að kasta þegar mbl.is heyrði í áhöfninni. Sögðu þeir veiðar ganga vel hjá þeim skipum sem fyrir voru á staðnum.
„Það gengur bara vel. Við erum með fyrsta kast og þetta er bara mjög góður afli,“ segir Ólafur Einarsson, skipstjóri á Heimaey VE. Spurður hverju fyrsta kast hafi skilað segir hann: „Ja, ég er bara enn að dæla. Ég hugsa að þetta séu um 1.200 tonn.“ Aðspurður segir hann loðnuna líta vel út.
Fleiri uppsjávarskip eru einnig á staðnum. Þar á meðal Börkur NK frá Síldarvinnslunni, Aðalsteinn Jónsson SU frá Eskju, Vilhelm Þorsteinsson EA frá Samherja og Kap VE frá Vinnslustöðinni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |