SVG íhugar úrsögn úr ASÍ

Haldið til veiða strax eftir að verkfalli lauk með samningum.
Haldið til veiða strax eftir að verkfalli lauk með samningum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það kemur til greina að félagið segi sig úr ASÍ í kjölfar þessa máls. Við útilokum ekkert að svo stöddu,“ segir Einar Hannes Harðarson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur (SVG), en á miðstjórnarfundi ASÍ þann 15. mars sl. hafnaði miðstjórn því einróma að veita SVG styrk upp á ríflega 62,1 milljón úr Vinnudeilusjóði ASÍ.

„Eins og gefur að skilja gekk hratt á fjármuni verkfallssjóðs SVG í þessu lengsta sjómannaverkfalli Íslandssögunnar sem lauk þann 19. febrúar. Þar sem verkfallið dróst á langinn varð verkfallssjóður okkur á endanum uppurinn og við þurftum að leita á náðir ASÍ með formlegri umsókn um greiðslu úr Vinnudeilusjóði ASÍ,“ segir Einar í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, og bendir á að ASÍ hafi hvorki verið tilbúið að greiða úr sjóðnum þá fjárhæð sem SVG óskaði eftir né veita sjómönnum minni styrk úr sjóðnum.

„Afstaða ASÍ byggist alfarið á reglum um sjóðinn sem settar voru eftir að umsókn SVG var lögð fram. Það er ótækt að beita slíkum reglum afturvirkt.“ Upphæðin er heldur ekki slík að sjóður ASÍ ráði ekki við hana en að sögn Einars eru um 360 milljónir í Vinnudeilusjóði ASÍ.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »