Gjaldtaka aðeins áhugamál Viðreisnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra hefur nýlega skipað nefnd um mögulega …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra hefur nýlega skipað nefnd um mögulega gjaldtöku í sjávarútvegi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þverpólitísk nefnd um möguleika á gjaldtöku í sjávarútvegi er aðeins áhugamál Viðreisnar en ekki hinna stjórnarflokkanna tveggja. Þetta segir í tilkynningu frá þingflokki Pírata og er vísað til ummæla Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í kjölfar uppsagna HB Granda á Akranesi, um að þær geti leitt til sáttar um slíka gjaldtöku. Segja Píratar að gjaldtakan ein og sér leysi ekki vanda sjávarbyggða, heldur geti hún magnað vandamálin ef ekki sé hugað vandlega að útfærslunni.

Ríkisstjórnin hefur alls ekki hug á að hrófla við kerfinu og yfirlýsingar Þorgerðar eru því í besta falli marklausar, í versta falli til að slá ryki í augu fólks til að það sjái ekki stöðuna eins og hún er. Samspil gjaldtöku og aðgengis er það sem Píratar stefna að,“ segir í tilkynningu þingflokksins.

Píratar segja hugmyndir um gjaldtöku í sjávarútvegi aðeins vera áhugamál …
Píratar segja hugmyndir um gjaldtöku í sjávarútvegi aðeins vera áhugamál Viðreisnar en ekki hinna stjórnarflokkanna.

Þar er ákvörðun HB Granda jafnframt fordæmd og sagt að fyrirtækið setji ekki aðeins framfærslu fólks í uppnám heldur skilji heilt bæjarfélag eftir í sárum. „Stærsti hluti þeirra sem HB Grandi segir nú upp eru harðduglegar konur, meðal annars einstæðar mæður sem lifa nú í algjöri óvissu um framfærslu sína og fjölskyldunnar. Starfsfólk fær uppsagnarbréfið í hendurnar um mánaðamótin en fjórum vikum síðar er stefnt að því að greiða hluthöfum HB Granda 1,8 milljarða króna í arð.

Píratar segja að í stað gjaldtökunnar sem Þorgerður tali fyrir vilji þeir gagngerar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu þannig að aflaheimildir séu boðnar upp á opnum markaði. „Með þeim hætti er jafnræði, nýliðun og sanngjarn arður þjóðarinnar af fiskveiðiauðlind hennar tryggður. Við viljum gera handfæraveiðar frjálsar og að allur fiskur fari á markað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,09 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 242,27 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 220,11 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,93 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 20.939 kg
Skarkoli 505 kg
Þorskur 191 kg
Steinbítur 30 kg
Samtals 21.665 kg
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 4.702 kg
Þorskur 3.032 kg
Langlúra 147 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 44 kg
Sandkoli 41 kg
Samtals 8.026 kg
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 4.556 kg
Skarkoli 2.602 kg
Ýsa 2.186 kg
Steinbítur 196 kg
Sandkoli 95 kg
Samtals 9.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,09 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 242,27 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 220,11 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,93 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 20.939 kg
Skarkoli 505 kg
Þorskur 191 kg
Steinbítur 30 kg
Samtals 21.665 kg
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 4.702 kg
Þorskur 3.032 kg
Langlúra 147 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 44 kg
Sandkoli 41 kg
Samtals 8.026 kg
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 4.556 kg
Skarkoli 2.602 kg
Ýsa 2.186 kg
Steinbítur 196 kg
Sandkoli 95 kg
Samtals 9.635 kg

Skoða allar landanir »