Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja að rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafi versnað og ekki er útilokað að álagning veiðigjalds fyrir næsta fiskveiðiár muni reynast einhverjum smærri og meðalstórum útgerðum ofviða. Slíkt gæti aukið samþjöppun í sjávarútvegi. Tilefnið er að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra birti í dag reglugerð um veiðigjald fyrir komandi fiskveiðiár. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Í reglugerð ráðuneytisins um veiðigjald er miðað við áætlað aflamark verði gjaldið um það bil 10,5 til 11,0 milljarðar króna, sem væri hækkun um 6 milljarða frá yfirstandandi fiskveiðiári, eða ríflega tvöföldun. Hækkun veiðigjalds vegna þorsks nemur 107%, ýsu 127% og makríls 18%.
„Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafa versnað og ekki er útilokað að álagning veiðigjalds fyrir næsta fiskveiðiár muni reynast einhverjum smærri og meðalstórum útgerðum ofviða. Slíkt gæti aukið samþjöppun í sjávarútvegi.“ Þetta kemur jafnframt fram í tilkynningu.
„Þetta er mikil hækkun sem mun koma hart niður á fjölmörgum útgerðum og þær eru misjafnlega í stakk búnar til að standa undir gjaldinu. Hjá sumum útgerðum getur hækkunin verið allt að fjórföld. Álagningin byggist á gömlum afkomutölum, eins og undanfarin ár, en aðstæður hafa breyst mjög til hins verra á liðnum misserum; gengi krónunnar hefur styrkst og tekjur gjaldeyrisskapandi fyrirtækja dregist verulega saman. Á sama tíma hefur kostnaður í íslenskum krónum, eins og vegna aðfanga og launa, hækkað mikið.“ Þetta er haft eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, í tilkynningu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |