Búist er við allt að 500 manns frá öllum heimshornum á Sjávarútvegsráðstefnuna World Seafood Congress sem haldin verður í Hörpu dagana 10. til 13. september. Meginþema ráðstefnunnar í ár er „vöxtur í bláa lífhagkerfinu“.
Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur heims þar sem fjallað er um verðmætasköpun og matvælaöryggi í sjávarútvegi og er ráðstefnan haldin dagana á undan Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi sem hefst miðvikudaginn 13. september.
Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um nýjungar eins og matvælaprentara sem talið er að muni hafa veruleg áhrif á matvælaframleiðslu í framtíðinni og um fjölmörg brýn og spennandi málefni sem snerta matvælaframleiðslu og matvælaöryggi.
Í tilkynningu frá World Seafood Congress, sem haldin er annað hvert ár, segir að Ísland sé fyrst Norðurlanda til að halda ráðstefnuna sem er á vegum IAFI (International Association of Fish Inspectors), samtaka fag- og eftirlitsaðila í fiskiðnaði. Matís sér um ráðstefnuna hér á landi en hún var síðast haldin í Bretlandi og þar áður í Kanada. Víetnam mun svo halda hana að tveimur árum liðnum.
„Það felast mikil tækifæri í því fyrir íslenskan sjávarútveg að fá þessa ráðstefnu hingað til lands til að kynna fyrir hvað hann stendur og hitta erlenda frumkvöðla sem einnig eru að fást við nýsköpun og þróun í sjávarútvegi,“ segir í tilkynningunni.
Meðal fyrirlesara verður Lynette Kucsma, einn af hönnuðum fyrsta matvælaprentarans sem verður sýndur á ráðstefnunni, John Bell frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem mun fjalla um áhrif tæknibreytinga í evrópskum sjávarútvegi og Anthony Wan, upphafsmaður Gfresh, stærsta stafræna markaðstorgs fyrir sjávarafurðir. Þá mun Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ávarpa ráðstefnuna.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er tilvísun í mikilvægi hafsins þar sem liggja veruleg tækifæri til vaxtar, nýsköpunar, rannsókna og markaðssetningar með matvælaöryggi, fæðuöryggi og sjálfbærni að leiðarljósi. Á meðal faglegra þátta sem fjallað verður um á WSC má nefna nýsköpun í sjávarútvegi og möguleika til fjárfestinga. Matvælaöryggi og forsendur alþjóðlegrar verslunar með mat og baráttuna gegn svikum í matvælaframleiðslu.