Velta í virðisaukaskattsskyldri starfsemi jókst um 2,7% á tímabilinu júlí 2016 til júní 2017 miðað við síðustu tólf mánuði þar áður. Velta í byggingarstarfsemi jókst mest, eða um 27%, en velta í sjávarútvegi var 16,5% lægri en tímabilið á undan.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Ekki var starfsemi tengd farþegaflutningum og ferðaskrifstofum tekin með í reikninginn þar sem hún var ekki virðisaukaskattsskyld fyrr en í ársbyrjun 2016 og er nauðsynlegt að taka tillit til þess þegar velta frá og með 2016 er borin saman við fyrri ár.
Þar kemur fram að velta hafi aukist í flestum einkennandi greinum ferðaþjónustu, t.d. í flokknum „rekstur gististaða og veitingarekstur“ þar sem aukningin nam 22,0% á tímabilinu júlí 2016 til júní 2017 miðað við síðustu tólf mánuði þar áður. Á sama tíma jókst velta í bílaleigu um 26,7%.
Einnig jókst velta milli ára í „byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugreftri og vinnslu jarðefna“ og nam aukningin um 27,0% sé tímabilið júlí 2016 til júní 2017 borið saman við næstu 12 mánuði á undan. Telur Hagstofa líklegt að hluti af þeim vexti geti verið tilkominn vegna vaxtar í einkennandi greinum ferðaþjónustu.
Ef miðað er við heilt ár og nýjustu tölur, þá var velta í sjávarútvegi 16,5% lægri á tímabilinu júlí 2016 til júní 2017 en síðustu tólf mánuði þar á undan. Á sama tíma lækkaði velta í heildverslun með fisk um 17,2%.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 562,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 244,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 218,83 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 274,92 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 156 kg |
Ýsa | 96 kg |
Hlýri | 57 kg |
Steinbítur | 23 kg |
Keila | 10 kg |
Samtals | 342 kg |
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.401 kg |
Ýsa | 2.351 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.768 kg |
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 461 kg |
Ýsa | 181 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Hlýri | 29 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 716 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 562,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 244,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 218,83 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 274,92 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 156 kg |
Ýsa | 96 kg |
Hlýri | 57 kg |
Steinbítur | 23 kg |
Keila | 10 kg |
Samtals | 342 kg |
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.401 kg |
Ýsa | 2.351 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.768 kg |
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 461 kg |
Ýsa | 181 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Hlýri | 29 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 716 kg |