Hafrannsóknastofnun hefur lagt til hámarks aflamark loðnu á yfirstandandi vertíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.
Segir þar að gildandi aflaregla byggi á því að 95% líkur séu á að skilin verði eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars næstkomandi. Sú regla taki tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afráns þorsks, ýsu og ufsa.
Í samræmi við regluna leggur stofnunin til að hámarks aflamark á vertíðinni verði 208 þúsund tonn. Tekið er fram að stofnunin muni að vanda mæla veiðistofn loðnu að nýju í janúar og febrúar, og í ljósi þeirra mælinga endurskoða ráðgjöfina.
Bergmálsmælingar fóru fram á stærð stofnsins um borð í rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, dagana 6. september til 9. október.
„Upprunalega var áætlað að leiðangrinum yrði lokið fyrir lok septembermánaðar. Umtalsverðar tafir urðu hinsvegar vegna bilana beggja rannsóknaskipanna auk þess sem nokkrar tafir urðu vegna slæmra veðurskilyrða,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.
Fram kemur að rannsóknasvæðið náði frá landgrunninu við Austur Grænland frá um 74°55’N og suðvestur með landgrunnskanti Grænlands að 64°50’N, en auk þess til Grænlandssunds, Íslandshafs, hafsvæðisins kringum Jan Mayen auk Norður- og Austurmiða.
„Ungloðna, sem myndar hrygningar- og veiðistofninn á vertíðinni 2018/2019, var vestast og sunnantil á svæðinu. Magn ungloðnu var víðast hvar lítið og ekkert fannst úti fyrir Norðurlandi. Einungis mældust rúmlega 26 milljarðar eða 219 þúsund tonn af ungloðnu.
Kynþroska loðna, sem myndar veiðistofn á vertíðinni 2017/2018, fannst víða í köntum og á landgrunni við Austur Grænland, í Grænlandssundi að landgrunnsbrúninni út af Vestfjörðum, en engin loðna fannst með landgrunnsbrún norðan Íslands.
Eins og á undanförnum árum var dreifingin mjög vestlæg og fannst loðna nær ströndum Grænlands en áður hefur sést í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar á þessum slóðum. Alls mældust um 945 þúsund tonn af kynþroska loðnu í leiðangrinum.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |