Ólafur Helgi sigraði með naumindum

Ólafur Helgi Marteinsson (til vinstri) sigraði Ægi Pál Friðbertsson í …
Ólafur Helgi Marteinsson (til vinstri) sigraði Ægi Pál Friðbertsson í formannskjöri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, en Ægir Páll mun gegna embætti varaformanns. Ljósmynd/Samsett

Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma hf., var kjörinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna í morgun og tekur við formennsku af Jens Garðari Helgasyni sem hefur gegnt embættinu frá stofnun þeirra 2014.

Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., gaf einnig kost á sér til formanns en Ólafur Helgi sigraði með naumindum. Hlaut Ólafur Helgi 49,99% atkvæða en Ægir Páll 49,05%, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Jens Garðar Helgason, fráfarandi formaður SFS, ásamt Ólafi Helga, nýjum …
Jens Garðar Helgason, fráfarandi formaður SFS, ásamt Ólafi Helga, nýjum formanni samtakanna. Ljósmynd/SFS

„Það var bara sjónarmunur á okkur frambjóðendunum. Ég tek glaður við embættinu og mótframbjóðandi minn, Ægir Páll Friðbertsson, verður varaformaður samtakanna. Þannig að það er góð sátt á milli okkar og munum vinna þetta saman. Gera okkar besta fyrir samtökin,“ segir Ólafur Helgi í samtali við 200 mílur.

Uppfært klukkan 13:57
Áður sagði að töluleg úrslit yrðu kynnt síðar í dag. Þau bárust í fréttatillkynningu og hefur fréttin verið uppfærð með tilliti til þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »