Ljóst að málið muni hafa pólitískar afleiðingar

Sjálfstæðisflokkurinn varaði matvælaráðherra við ákvörðun sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn varaði matvælaráðherra við ákvörðun sinni. Samsett mynd

Sjálfstæðismenn vöruðu Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra við að ákvörðun hennar um hvalveiðibann væri ólögmæt. Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að málið muni hafa pólitískar afleiðingar í för með sér. 

Hildur kallaði flokkinn saman í dag í kjölfar þess að umboðsmaður Alþingis gaf út álit um vinnubrögð matvælaráðherra. 

Niðurstaðan kemur sjálfstæðismönnum ekki á óvart

„Mér fannst rétt að við myndum koma saman og fara yfir þessa stöðu, niðurstaðan kemur ekki á óvart enda höfðum við varað við þessu og óskað eftir þvi að ráðherra myndi endurskoða þessa ákvörðun sína í sumar,“ segir Hildur 

Vilhjálmur Árnason, varaþing­flokks­formaður og rit­ari Sjálf­stæðis­flokks­ins, tekur í sama streng og segir málið litið mjög alvarlegum augum innan flokksins. Jafn alvarlegum augum og í sumar þegar flokkurinn varaði við því að ekki væri verið að gæta meðalhófs eða fylgja lögum þegar ákvörðunin var tekin. 

„Það hvernig var gengið á atvinnufrelsið og atvinnurétt fólks, sem hafði augljóslegar afleiðingar. Þetta var mjög alvarlegt fyrir fólk, fjölskyldur og fyrirtæki, þessi ákvörðun. Í því ljósi skoraði allur þingflokkurinn á ráðherra og hvatti ráðherra til þess í sumar að endurskoða ákvörðun sína,“ segir Vilhjálmur. 

Flokkurinn sama sinnis og í sumar 

Hildur segir þannig ekkert nýtt hafa komið fram, flokkurinn sé enn sama sinnis. Nú þegar niðurstaðan liggi fyrir segir Hildur ljóst að hún muni hafa einhverjar pólitískar afleiðingar í för með sér. „Hverjar þær verða verður aðeins að fá að koma í ljós,“ segir hún.

Helduru að hún fari úr ráðherrastólnum? 

„Ég kann ekki við að úttala mig um það, en mér þykir ólíklegt að það verði engar afleiðingar af þessu.

Spurður hvort flokkurinn sé þeirrar skoðunar að Svandís eigi að fylgja fordæmi Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í kjölfar þess að hann sagði af sér í sumar segir Vilhjálmur ríkisstjórnina í það minnsta verða að endurheimta traustið. Eins ef Svandísi er alvara um að taka áliti umboðsmanns alvarlega þá verði hún að sýna það i verki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »